Næstu námskeið
Mælingar á árangri í mannauðsstjórnun
Farið verður yfir þá þætti sem snúa að mælingum á árangri. Fjallað verður um mikilvægi þess að skilgreina árangur og hvernig hann lítur út í hverju tilviki fyrir sig.
Hvað er það sem hvetur starfsmenn áfram í vinnu sinni? Hvað getum við sem stjórnendur gert til að laða fram það besta í okkar starfsmönnum? Á námskeiðinu vinnum við með aðferðir sem snúa að því að finna mælikvarða sem henta og hvernig við getum með réttum aðferðum náð þeim mælikvörðum. Lögð er áhersla á að þátttakendur skilji hvernig hægt er að beita þessum aðferðum í þeim málum sem þeir eru að kljást við svo fræðin verði þeim nothæf. Skilningur á því af hverju við náum sumum
þeim markmiðum sem við setjum okkur meðan önnur eru erfiðari.


