fagmennt

Næstu námskeið

27.03.2012 Fagmennt

Samningatækni - grunnur

Námskeiðslýsing

Fagmennska í samningatækni hjálpar fólki til að ná hámarksárangri, bæði í einkalífi og í starfi. Í námskeiðinu er fjallað um lykilatriði árangursríkrar samningamennsku og samvinnu til að komast að góðu samkomulagi. Með fyrirlestrum, umræðum,
æfingum o.fl. munu nemendur afla sér þekkingar og færni í samningatækni. Á námskeiðinu er lögð sérstök áhersla á gagnlega hluti sem nýtast í raunverulegum samningaviðræðum. Þ.á.m. er skoðað hvernig best er að haga undirbúningi og hvaða aðferðir stuðla að win-win lausn.

Ávinningur

  • Að nemendur átti sig á mikilvægi samningaviðræðna jafnt í lífi sem og starfi
  • Að nemendur læri að þekkja og tileinka sér helstu grundvallaratriði innan samningatækni
  • Að nemendur þekki ferli samningaviðræðna
  • Að nemendur kynnist sínum eigin samningastíl

Kennslufyrirkomulag:

Námskeiðið fer fram þriðjudaginn 27. mars frá kl. 8.30-16.30 í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1.

Námskeiðið er 8 klukkustundir.

Verð: 40.000,- kr* (Innifalið í verði er morgunkaffi, léttur hádegisverður og síðdegishressing).

Leiðbeinandi:

Sigurður Ragnarsson starfar við kennslu og fræðslu og kennir m.a. við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst.
Sérsvið hans eru leiðtogafræði, samningatækni og markaðsfræði.

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING


 







  • Fagmennt - þekking í þágu þjóðar

    Vits er þörf þeim sem víða ratar. FagMennt Opna háskólans þjónar einstaklingum með hagnýtum námskeiðum til að auka færni og fagþekkingu.

  • Viðskipti um vefinn

    þverfaglegt nám um viðskiptahætti á netinu sem gefur innsýn í tæknilega, markaðslega og rekstrarlega þætti í farsælum viðskiptum um vefinn.
    Hefst 5.mars 2012

  • Rekstrar- og fjármálanám

    Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti reksturs og fjármála lítilla og millistórra fyrirtækja (SME).
    Hefst 17.janúar 2012

  • Lífsviðhorf - Lífstíll - Lífsgæði

    Heildrænt og árangursmiðað nám sem snýr að uppbyggingu einstaklingsins og persónulegri færni.
    Hefst 17. janúar 2012

  • Excel fyrir lengra komna

    Á námskeiðinu verður farið yfir mörg þeirra atriða sem starfsmenn þurfa að kunna til að geta nýtt Excel á markvissan máta í sínu starfi.
    Hefst í febrúar 2012

  • Námsbrautir

    Námsbrautirnar eru tilvaldar fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og auka við menntun sína.
    Opið fyrir umsóknir

  • Stök námskeið á háskólastigi

    Hagnýt námskeið á háskólastigi samhliða vinnu. Námskeiðin henta þeim sem vilja auka samkeppnishæfni sína og bæta við sig þekkingu án þess að fara í fullt nám.
    Opið fyrir umsóknir


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica