Næstu námskeið
Fjármálakreppur fyrr og nú
Námskeiðslýsing:
Stuðst er við bók Carmen M. Reinhart og Kenneth S. Rogoff „This time is different (2009) Princeton University Press“ þar sem rakin er saga fjármálakreppa, greiðslufalls þjóða og gjaldeyriskreppa um langan tíma. Leitast er við að skýra hvaða þættir virðast
endurtaka sig aftur og aftur í hegðun fjármálastofnana og stjórnvalda. Hvernig stendur á því að sömu mistökin eru endurtekin sem verða þess valdandi að allt endar á sama veg. Farið er yfir helstu niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar bandaríska þingsins í kjölfar síðustu fjármálakreppu þar í landi. Rakið er efni annarra skýrslna í kjölfar kreppunnar eins og Turner skýrslunnar og fleiri skýrslna. Alþjóðlegar eftirlitsstofnanir hafa brugðist við með strangari reglum og löggjöf um rekstur fjármálastofnana og raktar eru helstu breytingar og tilgangur þeirra.
Ávinningur:
Geta greint sameiginleg einkenni fjármálakreppa um allan heim.
Öðlast dýpri innsýn í atburðarás fjármálakreppa síðustu áratuga.
Skilja og geta greint viðbrögð eftirlitsaðila um allan heim.
Kunna skil á helstu tækjum eftirlitsaðila til markvissara eftirlits.
Hafa skoðanir á hvort og þá hvernig draga megi úr líkum á fjármálakreppum.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist innsýn í sífellt flóknari heim fjármálamarkaða og betri skilning á starfsemi fjármálafyrirtækja og markaða. Markmiðið er að auka almennan skilning á eðli fjármálakreppa til að geta dregið úr líkum á endurteknum mistökum og lágmarkað skaða af sviptingum á alþjóðlegum mörkuðum.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa á fjármálamarkaði, í stjórnsýslunni sem og öllum þeim sem vilja byggja upp þekkingu á þessu sviði eða starfa og taka ákvarðanir er haft geta áhrif á efnahagslegan og fjárhagslegan stöðugleika þjóðarinnar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING


