Næstu námskeið
Að fara út fyrir þægindahringinn
A) Að selja hugmyndina
Hér verða þátttakendur þjálfaðir í framkomu og framsögn sem eykur sjálfstraust. Þau eiga að útbúa og flytja kynningar sem sannfærir samstarfsfólk um mikilvægi þess að takast á við verkefnið sem þau eru talsmenn fyrir. Þar með eru slegnar tvær flugur í einu höggi; sjálfsstyrking um leið og unnið er með áskornir í starfinu. Spurningar sem velt eru upp eru m.a.: Hvað viljum við gera betur? Hvað væri gaman að gera? Hvaða áskoranir viljum við takast á við? Og við hverju verðum við að bregðast?
B) Skapandi flæði við skrifborðið
Nýjungar eru nauðsynlegar til að ná framförum í starfi. Markmiðið með nýsköpun og skapandi flæði innan vinnustaðarins er að nýta sköpunarkraft starfsfólks og leita leiða til að bæta árangur og velllíðan í starfi. Starfsmenn stiga út fyrir þægindasvæðið.
Við vinnum markvisst að því að finna upp aðferðir til að þróa hugmyndir, samtímavæða þær að þeim gömlu og finna nýjar lausnir á viðfangsefninu- lausnir sem leiða til endurbóta. Hver einstaklingur hefur sína aðferð til að hugsa, finna upp og leita lausna á viðfangsefnum. Hættan í hugmyndavinnu getur oft verið sú að við leitum að staðfestingu á þekkingu okkar en ekki að nýjungum; sköpunarþáttinn vantar. Vani og gamlar eða rótgrónar hefðir geta oft á tíðum komið í veg fyrir að nýjar og skemmtilegar hugmyndir fái að líta dagsins ljós. Áhersla er lögð á að þjappa starfsfólki saman, virkja hlátur taugarnar og styrkja flæði þekkingar milli einstaklinga og getunni til að miðla henni á milli.


