Næstu námskeið
Greining ársreikninga
Fjallað verður um lykilstærðir í greiningu ársreikninga þar sem áhersla verður lögð á þau atriði sem mestu máli skipta í núverandi rekstrarumhverfi s.s. sjóðstreymi og fjárhagsstöðu. Greining ársreikninga verður svo tengd við aðferðir við mat á skuldsetningu, áhættu og arðsemi.
Á námskeiðinu verður einnig fjallað um ýmis þeirra atriða sem hafa orðið fyrirtækjum að falli þegar erfitt rekstrarumhverfi herjar á fyrirtæki.og það útskýrt með tilvísanna til raunverulegra fyrirtækja. Í námskeiðinu verður einnig fjallað um nokkur hugtök sem mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum og varpað ljósi á hvort og hvernig þau tengjast erfiðleikum fyrirtækja.


