Virðing - Heilindi - Jafnrétti - Sanngirni
Háskólinn í Reykjavík er þekkingarsamfélag þar sem nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn vinna saman að öflun, nýsköpun og miðlun þekkingar. Í slíku samfélagi er mikilvægt að allir taki siðferðislega ábyrgð á störfum sínum. Til þess að þetta megi takast vill skólinn skapa starfsumhverfi þar sem samskipti og vinnubrögð einkennast af virðingu, heilindum, sanngirni og jafnrétti.
Markmiðið með þessum siðareglum er að stuðla að því að hegðun þeirra sem starfa innan skólans uppfylli ítrustu siðferðiskröfur sem gerðar verða innan háskóla. Reglurnar eru settar fram í 10 töluliðum. Þær eiga það sammerkt að minna á skyldur aðila skólans í samskiptum sín á milli og vinnubrögðum. Þær má hins vegar ekki skoða sem tæmandi lýsingu á æskilegri hegðun.
-
Við virðum þá sem læra og starfa innan skólans sem einstaklinga, komum fram við þá af tillitsemi og gætum trúnaðar gagnvart þeim.
-
Við komum í veg fyrir að í HR viðgangist hvers konar óréttlæti, svo sem einelti, kynferðisleg áreitni eða mismunun byggð á óviðkomandi þáttum svo sem kynferði, aldri, trú, þjóðerni, kynþætti, fötlun eða kynhneigð.
-
Við stöndum vörð um heiður skólans og aðhöfumst ekki neitt það sem kynni að vera til þess fallið að rýra álit samfélagsins á skólanum.
-
Við vinnum öll okkar verk innan HR af heiðarleika og heilum hug og stuðlum að því með virkum hætti að aðrir geri slíkt hið sama.
-
Við leitum þekkingar af heilindum og hlutlægni, og leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, gagnrýna hugsun og málefnalegan rökstuðning.
-
Við gætum persónuverndar og stöndum vörð um hagsmuni þeirra sem taka þátt í rannsóknum okkar.
-
Við virðum fræðilegt sjálfstæði, vinnum ávallt samkvæmt eigin sannfæringu og látum hagsmunatengsl ekki hafa áhrif á niðurstöður okkar.
-
Við virðum hugverkaréttindi, eignum okkur ekki heiðurinn af hugmyndum annarra, og getum ávallt þeirra heimilda sem við notum, í samræmi við venjur vísindasam félagsins.
-
Við gætum þess að vera málefnaleg og sanngjörn í umsögnum, endurgjöf og ummælum um aðra innan skólans.
-
Við erum virkir þátttakendur í starfi og þróun skólans og lítum á það sem skyldu okkar að miðla upplýsingum sem geta orðið til þess að bæta starf skólans.
Málsmeðferð og viðbrögð vegna ábendinga um brot á siðareglum
-
Rektor skipar þriggja manna siðanefnd eftir ábendingum starfsmanna og nemenda. Hlutverk hennar er að taka afstöðu til og gefa stjórnendum HR umsögn um mál sem til hennar er beint vegna meintra brota á siðareglum.
-
Rökstuddar ábendingar um brot á siðareglum skulu berast til siðanefndar HR. Siðanefnd fjallar um ábendingar samkvæmt starfsreglum siðanefndar sem samþykktar eru af framkvæmdastjórn. Í starfsreglunum skal kveðið á um andmælarétt, meðalhóf og önnur atriði sem tryggja málefnalega umfjöllun siðanefndar.
-
Siðanefnd skal taka rökstudda afstöðu afstöðu til þess hvort um brot á siðareglum HR er að ræða og um grófleika brots. Í afstöðu nefndarinnar skal einnig koma fram hvort brot eru ítrekuð. Siðanefnd tilkynnir málsaðilum, rektor og forseta viðkomandi deildar um niðurstöðu sína og er heimilt að mæla með því að hinn brotlegi verði látinn sæta viðeigandi viðurlögum. Niðurstöður siðanefndar eru endanlegar og verður ekki áfrýjað.
-
Viðbrögð við brotum á siðareglum eru ákveðin af forseta deildar, framkvæmdastjóra eða rektor eftir atvikum.
Samþykkt af rektor og framkvæmdastjórn í apríl 2006
Rektor Háskólans í Reykjavík skipaði þann 30. júní 2007 eftirfarandi aðila í siðanefnd skólans:
Steinn Jóhannsson forstöðumaður kennslusviðs, formaður (steinn@ru.is)
Luca Aceto, prófessor í tölvunarfræði
Margrét Vala Kristjánsdóttir, lektor í lagadeild
Erindum til siðanefndar skal beint til formanns nefndarinnar.
